Tinna Hrönn eftir fyrsta markið - „Easy mark í rauninni“

Tinna Hrönn Einarsdóttir skoraði sitt fyrsta mark í Bestu deildinni í sumar þegar Grindavík/Njarðvík vann mikilvægan 2-0 sigur á Fram

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Tinna Hrönn Einarsdóttir skoraði sitt fyrsta mark í Bestu deildinni í sumar þegar Grindavík/Njarðvík vann mikilvægan 2-0 sigur á Fram

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Tinna Hrönn Einarsdóttir skoraði sitt fyrsta mark í Bestu deildinni í sumar þegar Grindavík/Njarðvík lagði Fram að velli, 0-2, í 8. umferð deildarinnar. Hún var ánægð með bæði markið og stigin þrjú eftir leik.
„Bara góð sko, alltaf gott að sigra.“ svaraði Tinna Hrönn aðspurð um fyrstu viðbrögð eftir leik.
Tinna tvöfaldaði forystu Grindavíkur/Njarðvíkur í leiknum og var aldrei í vafa um að boltinn væri á leiðinni í netið.
„Já þetta var bara beint inn sko. Easy mark í rauninni.“
Að hennar mati var það hugrekki liðsins sem skildi á milli liðanna í dag.
„Við erum bara mjög góðar að halda boltanum og óhræddar. Ég held að það sé bara það. Við erum hugrakkar og ég held að það hafi tekið sigurinn í dag.“
Grindavík/Njarðvík fór með 1-0 forystu inn í hálfleikinn. Liðið hefur nokkrum sinnum misst niður forskot í sumar en Tinna segir að áherslan hafi verið á að halda áfram að sækja.
„Já alveg eitthvað, við sögðum bara að við ætluðum að fara inn í seinni hálfleik og halda áfram. Ekki fara að verja þetta eina mark, frekar að halda áfram og gefa í.“
„Ef við höldum áfram að spila okkar bolta og töpum þannig þá allavega gerðum við vel í staðinn fyrir að fara að verja eitthvað eitt mark, því það er ekkert.“
Fyrir tímabilið var Grindavík/Njarðvík af mörgum spáð falli en liðið hefur komið mörgum á óvart með frammistöðu sinni hingað til.
„Þetta er bara gaman og við erum að njóta okkar að spila. Maður getur ekkert litið of mikið í þessar spár, við spilum bara okkar bolta og ef það skilar okkur ekki því sem við viljum þá bara verður það þannig.“






