Fotbolti.net
13.06.26 - 18:14
Ívan Guðjón Baldursson

Besta deild kvenna: Markalaust á Hlíðarenda

Besta deild kvenna: Markalaust á Hlíðarenda
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Valur 0 - 0 Þór/KA
Besta deild kvenna: FH á toppinn eftir sjötta sigurinn í röð - Meistararnir töpuðu fyrir Stjörnunni
TENGT EFNI

Besta deild kvenna: FH á toppinn eftir sjötta sigurinn í röð - Meistararnir töpuðu fyrir Stjörnunni

Valur og Þór/KA áttust við í síðasta leik dagsins í Bestu deild kvenna og var staðan markalaus eftir bragðdaufan fyrri hálfleik.

Heimakonur í liði Vals voru hættulegri og komst Ísabella Sara Tryggvadóttir næst því að skora þegar langskot hennar endaði í stönginni.

Í síðari hálfleik byrjuðu gestirnir betur en tókst ekki að skapa mikla hættu. Það var lítið að frétta allt þar til í uppbótartíma þegar leikurinn virtist vera að opnast, en það var of seint.

Lokatölur 0-0 og er Valur með 8 stig eftir 8 umferðir á meðan Þór/KA vermir áfram botnsæti deildarinnar, aðeins með 3 stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.