Fotbolti.net
13.06.26 - 17:20
Ívan Guðjón Baldursson

Elfar Árni: Hann stígur á mig þegar hann er að standa upp, en það er bara áfram gakk

Elfar Árni: Hann stígur á mig þegar hann er að standa upp, en það er bara áfram gakk
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Elfar Árni Aðalsteinsson var í byrjunarliði Völsungs sem lagði Njarðvík að velli er liðin mættust á Húsavík í Lengjudeildinni í dag.
Elfar Árni lék allan leikinn og gerði sigurmarkið á 88. mínútu til að tryggja Húsvíkingum afar dýrmæt stig. Þetta er fyrsti sigur Völsungs í sumar og situr liðið í botnsæti deildarinnar með 5 stig eftir 9 umferðir.

„Mér fannst við byrja mjög illa, við vorum mjög lélegir á boltanum fyrstu 30 mínúturnar. Ég veit ekki hvort þetta hafi verið eitthvað stress eða óöryggi en það tók okkur smá tíma að komast inn í leikinn," sagði Elfar, en Völsungur lenti undir í fyrri hálfleik og var staðan 0-1 í leikhlé. Tvö mörk í seinni hálfleik snéru stöðunni við. „Við komum flottir og sterkir inn í seinni og náðum að setja tvö mörk sem tryggja þennan frábæra sigur."

Völsungur steinlá gegn Vestra í síðustu umferð þar sem Ísfirðingar gerðu sér lítið fyrir og skoruðu fimm mörk.

„Við komum frá erfiðu tapi um síðustu helgi og eðlilega var smá skjálfti í mönnum í upphafi en við náðum að halda þessu bara í einu marki og þá var alltaf möguleiki. Við sýndum mikinn karakter að koma til baka og klára þetta í síðari hálfleik."

Völsungur heimsækir ÍR í næstu umferð í Lengjudeildinni.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.