Fotbolti.net
13.06.26 - 18:01
Ívan Guðjón Baldursson

Davíð Smári: Leikmennirnir mínir urðu alltof litlir

Auglýsing
Davíð Smári: Leikmennirnir mínir urðu alltof litlir
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Davíð Smári Lamude þjálfari Njarðvíkur var gríðarlega svekktur eftir 2-1 tap á útivelli gegn botnliði Völsungs í Lengjudeildinni í dag.
Njarðvík var talsvert sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og leiddi 0-1, en Húsvíkingar snéru stöðunni við í síðari hálfleik. Njarðvíkingar eiga 11 stig eftir 9 umferðir.

„Við vorum með þennan leik algjörlega í lás í fyrri hálfleik og ef við horfum hreinskilningslega á leikinn þá vorum við bara hræddir. Við algjörlega áttum leikinn og áttum að klára hann í fyrri hálfleik en að lokum þá áttum við ekkert skilið úr þessu miðað við hvernig seinni hálfleikurinn spilaðist," sagði Davíð Smári.

„Við vorum mögulega meira með boltann og sköpuðum meira af færum en mér fannst við verða litlir á mikilvægum stundum og leikurinn tapaðist bara í teigunum í dag. Við fengum urmul af hornspyrnum sem við nýttum ekki, þeir voru á undan í alla bolta, þeir voru að berjast fyrir hvorn annan og ég veit ekki alveg hvernig leikmennirnir mínir náðu að verða svona litlir og leyfa leiknum að sigla frá okkur. Við urðum litlir á meðan þeir stækkuðu og stækkuðu.

„Alltaf þegar þeir fengu boltann hátt á vellinum urðum við stressaðir og bara litlir í okkur. Ég óska Völsung til hamingju með þennan sigur en mér finnst sjokkerandi að við höfum leyft þessu að fara svona. Þetta er leikur sem við erum með algjörlega alla stjórn á í fyrri hálfleik."


Í viðtalinu að leikslokum var Davíð var með ákall til leikmanna. Hann vill sjá lærlinga sína stíga upp og þenja út brjóstkassann í næstu leikjum.

Hann var einnig spurður hvort markmið tímabilsins hafi breyst hjá Njarðvíkingum. Markmiðið var að berjast um sæti í Bestu deildinni en liðið er í neðri hluta Lengjudeildarinnar eftir 9 umferðir af 22.

„Markmiðin hafa klárlega ekki breyst en staðreyndin er bara sú að við erum á þeim stað að við verðum að taka einn leik í einu."
Davíð Smári: Leikmennirnir mínir urðu alltof litlir
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Davíð Smári: Leikmennirnir mínir urðu alltof litlir
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.