13.07.03 - 00:00
Elvar Geir Magnússon
Sóknarmaðurinn Mido til Marseille (Staðfest)
Sóknarmaðurinn Ahmed Mido Hossam frá Egyptalandi hefur skrifað undir fimm ára samning við Olympique Marseille, þetta kom fram á heimasíðu franska liðsins í dag en þar stendur ekkert um hvað leikmaðurinn kostaði. Mido er 20 ára og var í láni frá Ajax til Celta Vigo seinni hluta seinasta tímabils.
