13.07.03 - 00:00
Elvar Geir Magnússon
Van Hooijdonk orðinn leikmaður Fenerbache (Staðfest)
Hollenski framherjinn Pierre van Hooijdonk skrifaði í dag undir tveggja ára samning við tyrkneska félagið Fenerbahce eins og búist var við. Hann er 33 ára og kostaði 700.000 pund. Hann skoraði 52 mörk í 61 deildarleik fyrir Feyenoord og hjálpaði liðinu að vinna Evrópubikarinn 2002.
"Ég er mjög stoltur af því að ég sé að fara að spila með jafnstóru liði og Fenerbahce. Ég mun gera mitt allra besta hér í Istanbúl." sagði Hooijdonk við undirritun samningsins.
Í gær keypti Fenerbache varnarmanninn Fabio Luciano frá Corinthians en hann krotaði undir samning til þriggja ára.
Í gær keypti Fenerbache varnarmanninn Fabio Luciano frá Corinthians en hann krotaði undir samning til þriggja ára.
