13.07.12 - 17:11
Hafliði Breiðfjörð
Maxi Rodriguez frá Liverpool til Newell\'s Old Boys (Staðfest)

Maxi Rodriguez hefur kvatt Liverpool.

Mynd: Getty Images

Maxi Rodriguez hefur kvatt Liverpool.

Mynd: Getty Images
Liverpool staðfesti á vef sínum rétt í þessu að Maxi Rodriguez sé farinn frá félaginu og genginn til liðs við Newell\'s Old Boys í heimalandi sínu, Argentínu.
Þetta gerist þrátt fyrir að Brendan Rodgers knattspyrnustjóri liðsins hafi fyrr í morgun lýst því yfir að hann hefði viljað halda leikmanninum.
Maxi Rodriguez kom til Liverpool frá Atletico Madrid í janúar árið 2010 og skoraði 17 mörk í 73 leikjum fyrir félagið.
Hápunktur tíma hans hjá Liverpool var þegar hann skoraði tvær þrennur é tveimur vikum, gegn Birmingham og Fulham árið 2011 en han skoraði líka mikilvæg mörk gegn Chelsea á Stamford Bridge í nóvember það ár.
,,Ég sný núna heim með ferðatösku fulla af minningum, á góða vini innan liðsins og hef kynnst frábærri fjölskyldu sem vinnur alla daga hjá félaginu. Þakka ykkur stuðninginn. Þið getið ekki ímyndað ykkur hversu mikill heiður það var þegar Kop söng: \'Maxi, Maxi Rodriguez hleypur upp kantinn fyrir mig da da da da dada...\" sagði Maxi í yfirlýsingu á vef Liverpool.

Heimild: Vefur Liverpool