13.07.12 - 23:55
Hafliði Breiðfjörð
Fyrrverandi liðsfélagi David Beckham til Þórs (Staðfest)

Wicks og Beckham ganga inn á völlinn í leik með LA Galaxy gegn stjörnuliði Eyjaálfu í desember 2008.

Mynd: Getty Images

Josh Wicks, 28 ára bandarískur markvörður, er genginn til liðs við 1. deildarlið Þórs frá Akureyri en þetta var staðfest á vef félagsins núna undir miðnætti.
Wicks þessi var liðsfélagi David Beckham hjá Los Angeles Galaxy í Bandaríkjunum árið 2008.
Hann hefur komið víða við síðan hann hóf feril sinn með meistaraflokki árið 2003 hjá Des Moines Menace, lék með Vancouver Whitecaps, Portland Timbers og AFCC Leopards þar til hann fór til LA Galaxy árið 2008 og spilaði þar átta leiki.
Þaðan fór hann svo til DV United þar sem hann spilaði 19 leiki árin 2009 og 2010 og var nú síðast hjá IFK Mariehamn í Finnlandi.
Páll Viðar Gíslason þjálfari Þórs sá til leikmannsins á ferð sinni til Bandaríkjanna fyrir skömmu þar sem hann var í Pro Impact Soccer Academy og vill svo til að Guiseppe Joe Funicello leikmaður Þórs er einn af eigendum Akademiunnar.
Srdjan Rajkovic hefur verið aðalmarkvörður Þórs undanfarin ár en fær þarna samkeppni um stöðuna.

Heimild: Vefur Þórs