Fotbolti.net
13.07.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Dagur Dan kom inn í sigri - Malmö skoraði fjögur

Dagur Dan kom inn í sigri - Malmö skoraði fjögur
Canon

Mynd: Matthías Már

Það komu nokkur Íslendingalið við sögu í gær þar sem Dagur Dan Þórhallsson kom inn af bekknum í frábærum sigri hjá CF Montréal í 8-liða úrslitum kanadíska meistaramótsins.
Montréal lagði Vancouver FC að velli þrátt fyrir að spila stærsta hluta leiksins leikmanni færri eftir að Efrain Morales lét reka sig af velli undir lok fyrri hálfleiks, í stöðunni 0-0.

Tíu leikmenn Montréal náðu forystunni á 56. mínútu og var Degi Dan Þórhallssyni skipt inn af bekknum skömmu síðar. Lokatölur urðu 2-1 og fer Montréal þægilega áfram eftir að hafa einnig unnið fyrri viðureign liðanna 2-1 á útivelli. Samanlagður 4-2 sigur.

Montréal mætir sterku liði Vancouver Whitecaps í undanúrslitum.

Í Svíþjóð rúllaði Malmö yfir Göteborg en Daníel Tristan Guðjohnsen var ónotaður varamaður í sigurliði Malmö, sem er með 19 stig eftir 12 umferðir eftir þriðja sigurinn í röð.

Gautaborg er í fallsæti með 10 stig en Kolbeinn Þórðarson var ekki í hóp.

Brommapojkarna er með 16 stig eftir tap á heimavelli gegn toppliði Sirius, en Hlynur Freyr Karlsson var ekki í hóp.

Í norska boltanum var Amin Cosic ekki í hóp er Viking tapaði á útivelli gegn Sarpsborg. Viking er í góðri stöðu í toppbaráttunni þrátt fyrir tapið.

Tyrkirnir í liði Kasimpasa unnu þá æfingaleik gegn Istanbulspor á meðan Kolding rúllaði yfir SC Weiche-08 og Helmond tapaði fyrir Westerlo.

Andri Fannar Baldursson er á mála hjá Kasimpasa, Ari Leifsson hjá Kolding og Helgi Fróði Ingason hjá Helmond.

Montreal 2 - 1 Vancouver FC (4-2 samanlagt)

Malmö 4 - 0 Göteborg

Brommapojkarna 1 - 2 Sirius

Sarpsborg 1 - 0 Viking

Kasimpasa 1 - 0 Istanbulspor

SC Weiche-08 0 - 6 Kolding

Helmond 0 - 2 Westerlo
Dagur Dan kom inn í sigri - Malmö skoraði fjögur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Dagur Dan kom inn í sigri - Malmö skoraði fjögur
Canon

Mynd: Viking Stavanger

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.