Költhetjan Sommer hafnar Spáni fyrir Belgíu

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Svissneska goðsögnin Yann Sommer hefur samþykkt samningstilboð frá belgíska stórveldinu Club Brugge eftir að hafa varið mark Ítalíumeistara Inter síðastliðin þrjú ár.

TENGT EFNI
Fjórir stórir póstar yfirgefa Inter (Staðfest)
Sommer er 37 ára gamall og var aðalmarkvörður hjá Inter alla dvöl sína hjá félaginu. Þar áður varði hann mark þýska stórveldisins FC Bayern eftir að hafa gert garðinn frægan með Borussia Mönchengladbach, Basel og svissneska landsliðinu.
Fabrizio Romano hefur sett „here we go!" stimpilinn sinn á félagaskiptin og segir að Sommer hafi valið Club Brugge framyfir mikilvægt félagslið á Spáni.
Sommer fékk nokkur góð tilboð en kaus Club Brugge þar sem hann verður aðalmarkvörður. Talið er að hann fái tveggja ára samning, eða eitt ár með möguleika á auka ári.
Sommer lék 94 landsleiki fyrir Sviss og fór þrisvar sinnum með á HM. Hann var varamarkvörður 2014 en varði mark liðsins 2018 og 2022.

Vozinha og aðrir markverðir sem urðu költhetjur á HM

Mynd: EPA