Traoré verður samherji Mikaels Egils

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Kantmaðurinn knái Hamed Junior Traoré er á leið til Genoa þar sem hann verður liðsfélagi Mikaels Egils Ellertssonar í efstu deild ítalska boltans.
Traoré kemur úr röðum Marseille en hann er 26 ára gamall og hefur átt erfitt uppdráttar á síðustu árum. Hann þótti gríðarlega mikið efni og skein skært með Sassuolo en stóðst hvorki væntingar hjá Bournemouth né Napoli í kjölfarið. Bournemouth borgaði um 25 milljónir evra til að kaupa hann á sínum tíma.
Traoré var í miklu stuði á láni hjá Auxerre í efstu deild franska boltans og vakti athygli Marseille sem festi kaup á honum en það gekk illa eftir félagaskiptin.
Traoré fer til Genoa á lánssamningi með 8 milljón evra kaupmöguleika, en Mikael og félagar enduðu með 41 stig á síðustu leiktíð - sjö stigum fyrir ofan fallsvæðið.
Traoré á 2 mörk í 12 landsleikjum fyrir Fílabeinsströndina en var ekki valinn í landsliðshópinn sem fór á HM.