Fotbolti.net
13.09.17 - 19:39
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Kári Ársæls: Töluvert erfiðara en ég hélt

Auglýsing
Kári Ársæls: Töluvert erfiðara en ég hélt
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<i>„Hrikalega skemmtilegt,\"</i> sagði Kári Ársælsson, varnarmaður og fyrirliði Augnabliks, eftir 3-0 sigur á Álftanesi í kvöld. Eftir sigurinn var það ljóst að Augnabliks spilar í 3. deild að ári.
„Það hefur verið langur vegur hingað og þetta var töluvert erfiðara en ég hélt, en þeim mun sætara í lokin.\"

„Þessi úrslitakeppni var ótrúlega skemmtileg.\"

Augnablik fékk mikinn liðsstyrk fyrir mót og fyrirfram héldu flestir að þeir myndu vinna 4. deildina auðveldlega. Það reyndist ekki rétt.

„Það hjálpar náttúrulega ekki þegar menn segja að við séum komnir upp áður en mótið byrjar. En það er bara eins og það er, það gerir þetta erfiðara og skemmtilegra.\"

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.