Fotbolti.net
20.07.26 - 22:27
Stefán Marteinn Ólafsson

Jóhann Kristinn: Það er bara ein leið út úr þessu og við þurfum að gera það saman

Auglýsing
Jóhann Kristinn Gunnarsson þjálfari Þróttara.

Jóhann Kristinn Gunnarsson þjálfari Þróttara.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn

Þróttur heimsótti nýliða Grindavík/Njarðvík á JBÓ vellinum í kvöld þegar 12. umferð Bestu deild kvenna hélt áfram göngu sinni. 

Þróttur mátti þola fjórða tapið í röð en þær komust tvívegis yfir í leiknum.

Lestu um leikinn: Grindavík/Njarðvík 4 - 2 Þróttur R.

„Ekki nógu góð eðlilega miðað við niðurstöðuna. Mjög vond niðurstaða í þessum leik fyrir okkur" sagði Jóhann Kristinn Gunnarsson þjálfari Þróttara eftir tapið í kvöld.

„Ég held að seinni tvö mörk andstæðinga, mark þrjú og fjögur súmmeri svolítið upp þá stöðu sem að við erum í núna" 

Þróttur komst tvívegis yfir í leiknum í byrjun sitthvors hálfleiks og byrjuðu þá sterkt en misstu svo tökin á leiknum eftir því sem á leið. 

„Það er bara blanda af ýmsu. Það var meiri kraftur í andstæðingnum í dag og því miður þá er einkennandi fyrir lið eins og okkur sem að eru í þeirri stöðu sem að við erum í að vera með lítið sjálfstraust og brotna of auðveldlega og það á bara ekki að vera í boði, við eigum að gera betur en þetta" 

Þetta var fjórða tap Þróttar í röð í deild en þrátt fyrir það er Jóhann Kristinn ekki áhyggjufullur um stöðu mála heldur frekar ósáttur.

„Ég er ekki gríðarlega áhyggjufullur, ég er mjög ósáttur. Það er enginn sáttur við þessa stöðu og þetta er alls ekki barátta sem að við ætlum að vera í að vera berjast um það sem blasir við okkur núna" 

„Eins og spilað er núna þá höfum við bara örfáa daga þar til við erum að fara taka þátt í undanúrslitum í Mjólkurbikar. Við getum eiginlega ekki verið að leyfa okkur það að vera með einhverjar þungar áhyggjur og barma okkur yfir þessu. Það er bara ein leið út úr þessu og við þurfum að gera það saman" 

„Næsta mál, deildin verður bara að fara á pásu núna þangað til á þriðjudaginn eftir rúma viku en fram að því eru undanúrslitin  í Mjólkurbikar og við þurfum að hugsa það næst, það er bara þannig" sagði Jóhann Kristinn Gunnarsson.

Nánar er rætt við Jóhann Kristinn Gunnarsson í spilaranum hér fyrir ofan.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Breiðablik15+2836
2FH15+2433
3ÍBV15-224
4Stjarnan15+423
5Grindavík/Njarðvík15-619
6Þór/KA15-218
7Þróttur R.15-418
8Fram15-1316
9Valur15-1313
10Víkingur R.15-1611
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.