Fotbolti.net
20.07.26 - 21:15
Ívan Guðjón Baldursson

Besta deildin: Markalaust í Hafnarfirði - Keflavík skoraði fimm

Besta deildin: Markalaust í Hafnarfirði - Keflavík skoraði fimm
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það fóru tveir leikir fram í Bestu deildinni í kvöld þar sem FH og Breiðablik áttust við í Hafnarfirði á meðan Keflavík tók á móti ÍA í Reykjanesbæ.
Dómgæslan í aðalhlutverki í Krikanum - „Blikar alveg brjálaðir!“
TENGT EFNI

Dómgæslan í aðalhlutverki í Krikanum - „Blikar alveg brjálaðir!“

Fyrri hálfleikurinn var jafn í Kaplakrika en Blikar gengu hundsvekktir til búningsklefa eftir slæm dómaramistök í fyrri hálfleik. Fyrst var löglegt mark dæmt af gestunum og síðar fengu þeir ekki dæmda vítaspyrnu þrátt fyrir að boltinn hafi bersýnilega farið í höndina á Jóhannesi Kristjáni Bjarnasyni innan vítateigs.

FH-ingar byrjuðu síðari hálfleikinn mun betur og fengu frábær færi til að taka forystuna en boltinn rataði ekki í netið. Kjartan Kári Halldórsson átti þrjár góðar tilraunir en Anton Ari Einarsson varði frábærlega þá fyrstu, seinna skotið hæfði stöngina og fór það þriðja yfir markið.

Leikurinn róaðist mikið niður í kjölfarið og var lítið að frétta á 20 mínútna kafla þar til Kristján Flóki Finnbogason skallaði í stöngina á lokakaflanum. Kristján Flóki var skömmu síðar stálheppinn að fá ekki rautt spjald fyrir að traðka á bringunni hans Ívars Arnar Árnasonar, en Gunnar Freyr Róbertsson dómari hefur ekki séð atvikið.

Bæði lið komust í góðar stöður og fengu hálffæri í uppbótartíma en tókst ekki að skora, svo lokatölur urðu 0-0. Blikar óheppnir með dómgæsluna í fyrri hálfleik og FH-ingar óheppnir að setja ekki sigurmark í síðari hálfleik.

Breiðablik er áfram í fjórða sæti Bestu deildarinnar, með 26 stig eftir 15 umferðir. FH er í fallsæti með 12 stig.

Á sama tíma skoruðu nýliðarnir frá Keflavík fimm mörk í stórsigri gegn ÍA, en staðan var 2-0 í leikhlé. Skagamenn byrjuðu leikinn betur en heimamenn náðu stjórn á honum þegar tók að líða á fyrri hálfleikinn. Þorlákur Breki Baxter skoraði fyrsta markið á 33. mínútu eftir stórsókn Keflvíkinga og tvöfaldaði Eiður Orri Ragnarsson forystuna skömmu síðar, eftir frábæran undirbúning frá Alpha Conteh.

Keflvíkingar héldu áfram að sækja og voru óheppnir að bæta ekki þriðja markinu við fyrir leikhlé. Veislan hélt áfram í síðari hálfleik þegar Stefan Ljubicic setti þriðja markið úr vítaspyrnu eftir að hafa fengið gott færi skömmu fyrr.

Eiður Orri innsiglaði svo sigurinn með fjórða markinu sem kom á 54. mínútu, þegar boltinn barst til hans utan vítateigs í kjölfar hornspyrnu.

Viktor Jónsson minnkaði muninn fyrir gestina úr vítaspyrnu skömmu síðar og vöknuðu Skagamenn til lífsins. Leikurinn var opinn og skemmtilegur þar sem bæði lið fengu frábær færi til að bæta við mörkum.

Muhamed Alghoul gerði fimmta mark heimamanna beint úr aukaspyrnu á lokamínútunum og minnkaði Markús Páll Ellertsson aftur muninn í uppbótartíma, svo lokatölur urðu 5-2.

Þetta eru afar dýrmæt stig fyrir nýliðana frá Keflavík sem eru um miðja deild með 19 stig eftir 15 umferðir. ÍA situr eftir með 15 stig.

FH 0 - 0 Breiðablik

Lestu um leikinn

Keflavík 5 - 2 ÍA
1-0 Þorlákur Breki Þ. Baxter ('33 )
2-0 Eiður Orri Ragnarsson ('35 )
3-0 Stefan Alexander Ljubicic ('51 , víti)
4-0 Eiður Orri Ragnarsson ('54 )
4-1 Viktor Jónsson ('57 , víti)
5-1 Muhamed Alghoul ('87 )
5-2 Markús Páll Ellertsson ('91 )

Lestu um leikinn
Besta deildin: Markalaust í Hafnarfirði - Keflavík skoraði fimm
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta deildin: Markalaust í Hafnarfirði - Keflavík skoraði fimm
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta deildin: Markalaust í Hafnarfirði - Keflavík skoraði fimm
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta deildin: Markalaust í Hafnarfirði - Keflavík skoraði fimm
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta deildin: Markalaust í Hafnarfirði - Keflavík skoraði fimm
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.15+3840
2KR16+2235
3Fram15+1333
4Breiðablik15+826
5Keflavík15-419
6Valur16-619
7ÍBV15-716
8Stjarnan15-815
9ÍA15-1215
10KA15-814
11FH15-1112
12Þór15-2511
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.