Fotbolti.net
20.07.26 - 20:20
Ívan Guðjón Baldursson

Rodri bættist við sögulegan hóp leikmanna

Rodri bættist við sögulegan hóp leikmanna
Canon

Mynd: EPA

Spænski miðjumaðurinn Rodri var í lykilhlutverki er Spánn vann annan heimsmeistaratitil sögu sinnar í gærkvöldi.
Rodri bestur á HM - Cubarsi besti ungi leikmaðurinn
TENGT EFNI

Rodri bestur á HM - Cubarsi besti ungi leikmaðurinn

Rodri var valinn sem besti leikmaður mótsins og er kominn í magnaðan sjö manna hóp leikmanna sem hafa afrekað hvað mest í fótboltasögunni.

Rodri og Lionel Messi eru einu núverandi fótboltamennirnir sem komast á þennan sérstaka lista leikmanna. Inngönguskilyrðin eru að hafa unnið Ballon d'Or, Meistaradeildina, HM og stóra Álfukeppni eins og EM.

Á þessum lista eru tveir Þjóðverjar, tveir Brasilíumenn og einn Frakki ásamt Messi og Rodri sem eru einu fulltrúar sinna þjóða.

Franz Beckenbauer og Gerd Müller eru þýsku leikmennirnir á listanum, Rivaldo og Ronaldinho þeir brasilísku og Zinedine Zidane sá franski.

Otamendi og Rodri tókust á - „Varst að grenja alla vikuna"
TENGT EFNI

Otamendi og Rodri tókust á - „Varst að grenja alla vikuna"

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.