Fotbolti.net
20.07.26 - 22:28
Stefán Marteinn Ólafsson

Hildur Katrín: Erum núna ekki alveg í jafn mikilli fallbaráttu

Auglýsing
Hildur Katrín Snorradóttir leikmaður Grindavík/Njarðvík

Hildur Katrín Snorradóttir leikmaður Grindavík/Njarðvík

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz

Grindavík/Njarðvík vann öflugan sigur á liði Þróttar í kvöld þegar 12. umferð Bestu deild kvenna hélt áfram göngu sinni.

Bæði lið hafa verið í örlitlu brasi upp á síðkastið og því kærkomið fyrir Grindavík/Njarðvík að sækja þrjú stig á heimavelli í kvöld.

Lestu um leikinn: Grindavík/Njarðvík 4 - 2 Þróttur R.

„Mér fannst við eiga mjög góðan leik og komum til baka þegar við vorum undir og mér fannst við bara góðar í dag" sagði Hildur Katrín Snorradóttir leikmaður Grindavík/Njarðvík en hún skoraði fyrsta mark liðsins í kvöld.

Hildur Katrín vildi meina að sitt lið hefði hreinlega bara viljað þetta meira í kvöld.

„Mér fannst við vera ákveðnari og bara vilja þetta meira og mikil orka"

Það var nýr leikmaður Grindavík/Njarðvík, Santa Sanija Vuskane sem stal senunni í kvöld en hún kom inn á sem varamaður og skoraði þrennu fyrir sitt lið í kvöld.

„Maður var ekki að búast við því en hún er bara geggjuð. Loksins kom einhver leikmaður sem gat skorað"

Þessi sigur gefur Grindavík/Njarðvík mikið fyrir framhaldið.

„Við erum núna ekki alveg í jafn mikilli fallbaráttu, erum komnar í fimmta sætið held ég þannig það var miög gott að vinna"

Mikilvægasti leikur tímabilsins til þessa hjá Grindavík/Njarðvík er um næstu helgi þegar liðið leikur í undanúrslitum Mjólkurbikarsins gegn Fram.

„Ég er mjög spennt og bara allt liðið er mjög spennt. Allir að mæta og styðja okkur til sigurs"  sagði Hildur Katrín Snorradóttir.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1FH11+2126
2Breiðablik11+1624
3Stjarnan11+921
4ÍBV12-120
5Grindavík/Njarðvík12-715
6Þróttur R.12-513
7Fram12-1213
8Þór/KA12-512
9Valur11-410
10Víkingur R.12-1210
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.