Jói Kalli: Mér fannst leikurinn bara vel dæmdur


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var bara hörkuleikur, Blikarnir með hörkulið og breidd í sínum hóp og mikla orku og gæði. Þannig þetta var hörkuleikur," sagði Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari FH eftir 0-0 jafntefli gegn Breiðablik í kvöld.
„Við vorum alveg klárir fannst mér og áttum ansi góðan leik að mörgu leiti. Þrátt fyrir að þetta hafi endað 0-0 þá fannst mér frammistaðan góð, og sköpuðum flott færi undir lokin til að klára leikinn," sagði Jóhannes.
FH hefur núna ekki tapað sex leiki í röð en þar á meðal eru fjögur jafntefli og því er liðið ennþá í fallsæti.
„Auðvitað er þetta líka það að frammistöðurnar eru góðar. Við erum að halda hreinu hérna í dag, varnarleikurinn er góður, uppspilið okkar er að verða betra og erum að komast í góðar stöður, við erum að ná að stríða andstæðingnum þokkalega vel og búa til stöður til þess að skora mörk. Pressan hjá okkur er að mörgu leiti góð, auðvitað getum við ekki pressað hundrað prósent og gert það heilan leik, en hugarfarið, vinnusemin og andinn í þessum strákum er það sem að er búið koma okkur á þetta 'run'. Förum sex leiki án þess að tapa, en að sama skapi mun það líka vera það, andinn og viljinn í strákunum plús alvöru gæði. Ef við höldum áfram svona þá munum við sækja fleiri sigra, það er alveg á hreinu," sagði Jóhannes.
Oliver Stefánsson og Jóhannes Kristinn Bjarnason spiluðu sínar fyrstu mínútur fyrir FH í kvöld, en þeir komu nýir inn í liðið þegar glugginn opnaði.
„Þeir spiluðu bara virkilega vel. Þeir hafa komið virkilega vel inn í þetta, og það er eins og þeir eru búnir að vera með okkur í langan tíma. Báðir góðir á boltanum, góðir karakterar, og áttu bara fína frammistöðu í dag eins og restin af liðinu," sagði Jóhannes.
Það var töluvert af umdeildum atvikum í leiknum þar sem gestirnir voru ósáttir með ákvarðanir dómara.
„Ég er náttúrulega þokkalega langt frá þessu, þannig ég er ekki í stöðu til þess að meta þetta. Mér fannst leikurinn virkilega vel dæmdur af dómaranum, þetta var erfiður leikur, mikið af tæklingum. Blikarnir byrjuðu ansi grimmt að negla okkur niður í okkar skyndisóknar möguleikum í fyrri hálfleik. Það var greinilega planið að stoppa okkur, því við erum með hraða fram á við. Þeir gerðu það grimmilega til að byrja með, dómari leiksins þurfti að eiga við það. Mér fannst leikurinn bara vel dæmdur hjá honum, ekkert út á hann að setja, og ég held að þessar ákvarðanir hafi bara verið réttar hjá honum meira og minna allar," sagði Jóhannes.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð





