Fotbolti.net
20.07.26 - 21:29
Ívan Guðjón Baldursson

Besta deild kvenna: Santa með þrennu í fyrsta leik

Besta deild kvenna: Santa með þrennu í fyrsta leik
Canon

Mynd: Grindavík/Njarðvík

Kvennaboltinn
Grindavík/Njarðvík 4 - 2 Þróttur R.
0-1 Þórdís Nanna Ágústsdóttir ('8 )
1-1 Hildur Katrín Snorradóttir ('44 )
1-2 Kristrún Ýr Holm ('51 )
2-2 Santa Sanija Vuskane ('68 )
3-2 Santa Sanija Vuskane ('81 )
4-2 Santa Sanija Vuskane ('83 )
Lestu um leikinn: Grindavík/Njarðvík 4 - 2 Þróttur R.
Nýliðar Grindavíkur/Njarðvíkur hafa verið að spila frábæran fótbolta í Bestu deild kvenna í sumar og tóku á móti Þrótti R. í eina leik kvöldsins.

Þórdís Nanna Ágústsdóttir tók forystuna snemma leiks eftir að liðsfélagar hennar höfðu unnið boltann hátt uppi á vellinum og hélt Þróttur forystunni allt þar til undir lok fyrri hálfleiks.

G/N tók völdin á vellinum og jafnaði Hildur Katrín Snorradóttir metin á 44. mínútu, með skalla eftir góða fyrir gjöf frá Júlíu Ruth Thasaphong.

Kristrún Ýr Holm endurheimti forystu gestanna eftir mikinn atgang í kjölfar hornspyrnu í upphafi síðari hálfleiks en Santa Sanija Vuskane tók til sinna ráða á lokakaflanum.

Santa er lettnesk landsliðskona sem samdi við G/N á dögunum og var að spila sinn fyrsta leik fyrir félagið í kvöld. Santa kom inn af bekknum á 66. mínútu og skoraði með því sem var líklega hennar fyrsta snerting skömmu síðar eftir óöryggi hjá Mollee Swift á milli stanga Þróttar.

Staðan var þá orðin 2-2 og fengu bæði lið færi til að taka forystuna á lokakaflanum. Santa reyndist óstöðvandi, hún fékk gott færi sem fór forgörðum en náði svo að skora eftir frábæra fyrirgjöf frá Ásu Björg Einarsdóttur á hægri kanti. Óljóst er hvort Santa eða varnarmaður Þróttar hafi náð snertingunni á boltann.

Santa var hvergi hætt og fullkomnaði þrennuna sína skömmu eftir annað markið. Í þetta skiptið nýtti hún sér skelfileg mistök í varnarlínu Þróttar og refsaði með marki. Meira var ekki skorað og urðu lokatölur 4-2 eftir magnaða innkomu Santa í hennar fyrsta leik á Íslandi.

Lettnesk landsliðskona í Grindavík/Njarðvík (Staðfest)
TENGT EFNI

Lettnesk landsliðskona í Grindavík/Njarðvík (Staðfest)

Besta deild kvenna: Santa með þrennu í fyrsta leik
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta deild kvenna: Santa með þrennu í fyrsta leik
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta deild kvenna: Santa með þrennu í fyrsta leik
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Breiðablik15+2836
2FH15+2433
3ÍBV15-224
4Stjarnan15+423
5Grindavík/Njarðvík15-619
6Þór/KA15-218
7Þróttur R.15-418
8Fram15-1316
9Valur15-1313
10Víkingur R.15-1611
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.