Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 13. október 2019 20:30
Brynjar Ingi Erluson
Mane uppáhalds leikmaður Carragher
Sadio Mane í leik með Liverpool
Sadio Mane í leik með Liverpool
Mynd: EPA
Sadio Mane, leikmaður Liverpool á Englandi, er uppáhalds leikmaður Jamie Carragher.

Mane hefur svo sannarlega stimplað sig inn í lið Liverpool á síðustu þremur árum frá því hann kom frá Southampton en hann var markahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili ásamt Mohamed Salah og Pierre Emerick Aubameyang.

Hann var þá í lykilhlutverki er Liverpool vann Meistaradeildina en hann er í miklu uppáhaldi hjá Jamie Carragher.

„Ég sagði það eftir fyrstu leikina með Liverpool að hann væri mögulega einn besti vinstri kantmaður heims ásamt Raheem Sterling," sagði Carragher.

„Ég elska hann. Hann er uppáhalds leikmaðurinn minn hjá félaginu. Hann er frábæ og alltaf brosandi. Hann er alltaf að spila, nær í mörk og leggur þau líka upp."

„Hann kom inn þegar Klopp var að hefja ferilinn hjá Liverpool og var fyrstu stórkaupin hans og eftir það hefur hann bætt sig á hverjum degi. Hann er vél,"
sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner