Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mið 13. nóvember 2019 18:30
Brynjar Ingi Erluson
Nagelsmann mun ekki standa í vegi fyrir Werner
Timo Werner er sjóðheitur með Leipzig
Timo Werner er sjóðheitur með Leipzig
Mynd: Getty Images
Julian Nagelsmann, þjálfari RB Leipzig í Þýskalandi, ætlar ekki að standa í vegi fyrir Timo Werner ef hann vill fara frá félaginu næsta sumar.

Werner, sem er 23 ára gamall, kom til Leipzig frá Stuttgart fyrir rúmum þremur árum síðan og hefur hann gert 76 mörk í 130 leikjum með félaginu.

Hann er kominn með 15 mörk og 7 stoðsendingar í 17 leikjum á þessari leiktíð en hann hefur verið orðaður við lið á borð við Liverpool og Manchester United.

Werner er með klásúlu í samningnum sem leyfir honum að fara frá félaginu fyrir 27 milljónir punda.

„Ég hef þegar ráðlagt mörgum leikmönnum að fara frá félögum til að spila annars staðar. Ég myndi gera það sama við Timo Werner ef hann væri að þróa leik sinn hraðar en liðið sem hann spilar fyrir," sagði Nagelsmann.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner