13.11.26 - 19:02
Brynjar Ingi Erluson
Faðir Mac Allister tjáir sig um framtíð hans hjá Liverpool

Alexis Mac Allister

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Alexis Mac Allister

Mynd: EPA
Carlos Mac Allister, faðir Alexis Mac Allister, miðjumanns Liverpool, segir að frekari tíðinda af samningsmálum sonar síns gæti verið að vænta fyrir áramót.

TENGT EFNI
Mac Allister: Liverpool vildi ekki semja við mig
Mac Allister hefur verið stórkostlegur með Liverpool á þessari leiktíð og er farinn að minna á sjálfan sig frá tímabilinu 2024-2025 þegar Liverpool varð Englandsmeistari.
Hann lék einnig frábærlega með argentínska landsliðinu sem komst alla leið í úrslitaleik HM í sumar.
Liverpool tilkynnti Argentínumanninum í sumar að félagið hygðist ekki bjóða honum nýjan samning, en sú staða gæti breyst á næstu vikum og mánuðum í ljósi frábærrar frammistöðu hans.
Faðir Mac Allister ræddi framtíð sonar síns í viðtali við ESPN og segir að enn sé allt opið varðandi mögulega samningsframlengingu.
„Það eru enn 20 mánuðir eftir af samningnum hans. Liverpool hefur skipt um yfirmann íþróttamála og stjóra, þannig að staðan er enn til skoðunar og það gætu komið einhverjar fréttir áður en árið er úti.“
„Við höfum ekki hafið viðræður að nýju, en ef allt gengur að óskum mun hann framlengja. Ef ekki, þá er það líka í góðu lagi. Hann fer þá sína eigin leið eins og margir aðrir. Hann er ungur leikmaður sem hefur unnið Copa America og HM, endað í öðru sæti á síðasta heimsmeistaramóti og var sá Argentínumaður sem hljóp mest á mótinu.“
„Hann hefur náð ótrúlegum árangri og á að baki fjölda afreka sem tryggja honum sæti hjá einu af stærstu félögum heims. Þegar þú spilar með Liverpool og heldur þér í toppformi eru aðeins sex eða sjö félög í heiminum sem koma til greina sem næsti áfangastaður,“ sagði hann.
Gæti hann snúið aftur heim til Argentinu?
„Ég trúi því ekki að félög í Argentínu haldi í alvöru að Alexis, Enzo Fernandez eða Julian Alvarez gætu verið að spila þar á næsta ári. Alexis veit vel að framtíð hans liggur enn í Evrópu. Hann er rétt nýorðinn 27 ára,“ sagði faðir hans í viðtali við ESPN.