Fotbolti.net
13.11.26 - 12:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
- Skrifar frá Plovdiv

Vill að liðið taki skref inn í fullorðinsheiminn - „Auðvitað slekkur það á ýmsum röddum líka"

Arnar á vellinum í gær.

Arnar á vellinum í gær.

Canon

Mynd: KSÍ

Eimskip
Íslenska landsliðið ætlar sér að enda í efsta sæti riðilsins í Þjóðadeildinni. Fyrir leik kvöldsins gegn Búlgaríu er íslenska liðið á toppi riðilsins og getur farið mjög langt með að tryggja toppsætið með sigri á Hristo Botev leikvanginum í kvöld.

Sigur í riðlinum kæmi Íslandi upp í B-deild Þjóðadeildarinnar. Ísensk liðið er líka að spila um sæti í þriðja styrkleikaflokki í komandi drætti fyrir undankeppni EM 2028 og einnig aukna möguleika á umspilssæti fyrir næsta Evrópumót. Því fleiri stig úr leikjunum gegn Búlgaríu og Lúxemborg, því betra.

Arnar Gunnlaugsson, þjálfari landsliðsins, sat fyrir svörum á fréttamannafundi í Plovdiv í gær.
Hlutverk sem Orri þrífst í - „Gerði auðvitað gríðarlega mikið fyrir mig"
TENGT EFNI

Hlutverk sem Orri þrífst í - „Gerði auðvitað gríðarlega mikið fyrir mig"

Býst við því að Lúxemborg fái stig gegn Eistlandi
„Markmiðið er að vinna riðilinn. Við þurfum að passa upp á að eiga mjög góðan leik á morgun, þurfum að sinna okkar vinnu. Tilfinning mín er að Lúxemborg fái stig gegn Eistlandi og það væri súrt ef við klárum ekki okkar. Við erum að spila gegn búlgörsku liði sem kemur inn í leikinn með mikið sjálfstraust, unnu Lúxemborg sannfærandi í síðasta leik. Ég býst við erfiðum leik, eins og í öllum útileikjum í landsliðsfótbolta. Við þurfum því að vera upp á okkar besta til að geta fengið þrjú stig sem markmiðið er í leiknum," sagði Arnar á fundinum.

Sér jákvæða þróun á liði Búlgaríu eftir þjálfarabreytingu
Ef Ísland vinnur Búlgaríu og Lúxemborg nær í úrslit gegn Eistlandi þá mun Ísland tryggja sér toppsætið í kvöld.

Fyrir síðasta leik gegn Íslandi gerðu Búlgarar þjálfarabreytingu, Atanas Ribarski tók við af Aleksandar Dimitrov í miðri landsleikjatörn.

„Við unnum 3-0 heima, en ef ég á að vera hreinskilinn þá vorum við heppnir að fá ekki á okkur fyrsta markið í Reykjavík, Búlgaría fékk 1-2 góð færi áður en við skoruðum. Ég veit að allir horfa á úrslitin og dæma út frá því, en ég var ekki ánægður með fyrstu 20-25 mínúturnar í þeim leik."

„Stundum veistu ekki hvernig leikstíl nýr þjálfari kemur með, núna þekkjum við hann aðeins betur. Ég sé góða þróun á liðinu, liðið átti góðan leik gegn Lúxemborg og partur gegn okkur var góður. Það er jákvæð þróun milli leikja, en vonandi höldum við þeim hljóðlátum í leiknum."

„Sem fyrrum leikmaður þekki ég að þegar sigur næst þá líður þér eins og þú sért tíu kílóum léttari, þú færð sjálfstraust og við þurfum að passa upp á að það sjálfstraust verði ekki blússandi í byrjun leiks."


Eins og að koma heim fyrir Skagamennina
Leikvangurinn í Plovdiv er með gulu og svörtu þema. Sem Skagamaður, er gaman að sjá þetta?

„Já. Við erum líka með nokkra Skagamenn í liðinu sjálfu, manni líður eins og heima hjá sér. Völlurinn er flottur, ég var smá hræddur við að koma hingað bara út af ástandinu sem við fengum að kynnast úti í Eistlandi. Völlurinn er virkilega góður og því engar afsakanir að eiga ekki góðan leik á morgun."

Myndi slökkva í ýmsum röddum
Finnur þú aukna pressu á þér út frá því hvernig þú ákvaðst að höndla agamálið í síðasta glugga?

„Nei, mér finnst alltaf geggjuð pressu á þessu starfi og það á alltaf að vera geggjuð pressa á þessu starfi. Pressan sem ég set á sjálfan mig er mikil, við þurfum að klára þetta verkefni núna."

„Ég var óánægður, og strákarnir örugglega líka, með Úkraínu leikinn í fyrra. Þá höfðum við tækifæri á að komast í umspil. Það er staðreynd að í okkar íþrótt, og öllum íþróttum, þá er erfiðasti hjallinn að fara úr sæti tvö í sæti eitt og klára málin; hvort sem það er að vinna bikara eða annað. Við þurfum að læra af biturri reynslu og eina leiðin til þess er að stíga skref inn í fullorðinsheiminn eins og liðið gerði svo eftirminnilega 2014 og 2015. Við þurfum að klára þetta á morgun og mánudaginn, loka þessum glugga."

„Það er pressa sem ég set á sjálfan mig og strákana, ég set gríðarlega ábyrgð á strákana að klára þessi mál. Mér finnst allt í lagi að tala bara íslensku hvað það varðar. Ef við værum að fegra hlutina og tala í kringum þá með að segjast gera sitt besta... nei nei, við erum að fara loka þessum glugga og auðvitað slekkur það á ýmsum röddum líka. Besta leiðin til að gera það er að vinna báða leikina og þá getum við verið mjög sáttir við þetta ár,"
sagði Arnar.
Hristo Botev leikvangurinn.

Hristo Botev leikvangurinn.

Canon

Mynd: KSÍ

Búist við 20-30 Íslendingum í stúkunni.

Búist við 20-30 Íslendingum í stúkunni.

Canon

Mynd: KSÍ

Atanas Ribarski tók við Búlgaríu fyrir leikinn á Laugardalsvelli.

Atanas Ribarski tók við Búlgaríu fyrir leikinn á Laugardalsvelli.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Besta leiðin til að gera það er að vinna báða leikina og þá getum við verið mjög sáttir við þetta ár

Besta leiðin til að gera það er að vinna báða leikina og þá getum við verið mjög sáttir við þetta ár

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.