13.11.26 - 11:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Vestri krækir í írskan markvörð (Staðfest)

Mynd: Vestri

Mynd: Vestri

Írinn, David Odumosu, er genginn í raðir Vestra fyrir komandi tímabil í Lengjudeildinni og hann gerir tveggja ára samning.
Odumosu á nígeríska foreldra en er fæddur í Dundalk.
Hann er 25 ára markvörður sem kemur í Vestra frá Cork City á Írlandi. Hann var í akademíu Dundalk og í yngri landsliðum Írlands.
Hann hefur allan sinn feril spilað á Írlandi eða Norður-Írlandi.

Vestramenn eiga von á David í byrjun næsta árs. Marvin Darri Steinarsson var aðalmarkvörður Vestra á liðnu tímabili.