Fotbolti.net
13.11.26 - 09:39
Fótbolti.net

Sagt að ÍA greiði 10 milljónir króna fyrir Ómar

Sagt að ÍA greiði 10 milljónir króna fyrir Ómar
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur er að klára kaup á Ómari Birni Stefánssyni frá ÍA. Fótbolti.net greindi frá því að ÍA hefði samþykkt tilboð frá Val.

Í hlaðvarpsþætti gærdagsins, Beint frá Búlgaríu, var sagt frá því að verðmiðinn væri 10 milljónir króna. Ómar kom í ÍA frá Fylki fyrir tímablið 2025.

Ómar er 22 ára sóknarmaður sem byrjaði 13 deildarleiki á liðnu tímabili. Hann skoraði tvö mörk og lagði upp fjögur.
ÍA hefur samþykkt tilboð Vals í Ómar Björn
TENGT EFNI

ÍA hefur samþykkt tilboð Vals í Ómar Björn

Rætt var um það í þættinum að hann gæti vel nýst Val undir stjórn Halldórs Árnasonar sem vill að sitt lið pressi stíft.

Hjá ÍA var Ómar Björn í samkeppni við Viktor Jónsson og Markús Pál Ellertsson sem báðir áttu gott tímabil. Hja Val hittir Ómar fyrir yngri bróður sinn, Stefán Gísla Stefánsson.
Sagt að ÍA greiði 10 milljónir króna fyrir Ómar
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Beint frá Búlgaríu - Skyldusigur gegn buguðum Búlgörum

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.