Fotbolti.net
13.11.26 - 22:27
Brynjar Ingi Erluson

Þjóðadeildin: Hollendingar í sjöunda himni - Wirtz skoraði í sigri Þjóðverja

Reijnders skoraði þrennu á tuttugu mínútna kafla

Reijnders skoraði þrennu á tuttugu mínútna kafla

Canon

Mynd: EPA

Hollendingar slátruðu Grikkjum með óvæntum 7-0 stórsigri í B-riðli A-deildar Þjóðadeildarinnar í kvöld, þar sem Tijjani Reijnders skoraði þrennu á aðeins tuttugu mínútum. Þá komst Florian Wirtz á blað í 3-1 sigri Þjóðverja á Serbum.
Grikkir höfðu verið frábærir í Þjóðadeildinni fram að þessum leik og ekki tapað einum einasta leik, en þeir voru hreinlega úrbeinaðir í fyrri hálfleik.

Tijjani Reijnders fór á kostum og skoraði þrennu á aðeins tuttugu mínútum, en þeir Crysencio Summerville og Jurrien Timber bættu einnig við mörkum áður en flautað var til hálfleiks.

Timber skoraði sitt annað mark snemma í síðari hálfleik og nokkrum mínútum síðar rak Donyell Malen síðasta naglann í kistu Grikkja.

Með stórsigrinum komst Holland í ellefu stig og er nú þremur stigum á undan bæði Grikklandi og Þýskalandi. Þjóðverjar unnu 3-1 sigur á Serbum þar sem Florian Wirtz, leikmaður Liverpool, hélt áfram að sýna frábæra takta.

Þjóðverjar eiga enn möguleika á toppsætinu, en til þess þurfa þeir að leggja Holland að velli í lokaumferðinni.

Í C-deildinni unnu Eistar mikilvægan 1-0 sigur á Lúxemborg og eru því í öðru sæti í riðli Íslands með níu stig, tveimur stigum á eftir íslenska liðinu. Íslandi nægir því eitt stig gegn Lúxemborg í lokaumferðinni til að tryggja sér toppsætið.

Úrslit allra leikja kvöldsins má sjá hér fyrir neðan.

A-deild:

Holland 7 - 0 Grikkland
1-0 Crysencio Summerville ('6 )
2-0 Tijjani Reijnders ('12 )
3-0 Tijjani Reijnders ('18 )
4-0 Tijjani Reijnders ('33 )
5-0 Jurrien Timber ('40 )
6-0 Jurrien Timber ('59 )
7-0 Donyell Malen ('61 )

Serbía 1 - 3 Þýskaland
0-1 Srdjan Babic ('3 , sjálfsmark)
0-2 Florian Wirtz ('14 )
0-3 Brajan Gruda ('50 )
1-3 Srdjan Babic ('56 )
Rautt spjald: ,Vanja Dragojevic, Serbía ('76)Andrija Zivkovic, Serbía ('89)

B-deild:

Skotland 2 - 1 Norður-Makedónía
1-0 John McGinn ('54 )
1-1 Elmin Rastoder ('57 )
2-1 John McGinn ('74 , víti)

Slóvenía 0 - 0 Sviss

C-deild:

Moldóva 2 - 1 Kasakstan
1-0 Petru Popescu ('39 )
1-1 Islam Chesnokov ('51 )
2-1 Petru Popescu ('77 )
Rautt spjald: Maksim Samorodov, Kazakhstan ('90)

Lúxemborg 0 - 1 Eistland
0-1 Maksim Paskotsi ('42 )

Slóvakía 2 - 2 Færeyjar
1-0 Erik Prekop ('17 )
1-1 Viljornur Davidsen ('30 , víti)
1-2 Aki Samuelsen ('48 )
2-2 Lukas Haraslin ('74 )

D-deild:

Andorra 2 - 0 Gíbraltar
1-0 Guillaume Lopez ('24 )
2-0 Berto Rosas ('35 )
2-0 Tjay De Barr ('64 , Misnotað víti)

Liechtenstein 0 - 1 Aserbaísjan
0-1 Mahir Emreli ('26 )
Florian Wirtz var á skotskónum

Florian Wirtz var á skotskónum

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.