13.11.26 - 20:04
Brynjar Ingi Erluson
Courtois leggur fram tilboð í Íslendingafélag

Courtois vill kaupa Reggiana

Mynd: EPA

Courtois vill kaupa Reggiana

Mynd: EPA
Belgíski markvörðurinn Thibaut Courtois hefur lagt fram tilboð í ítalska C-deildarfélagið Reggiana.
Courtois er farinn að láta til sín taka í fjárfestingum í fótboltaheiminum, en fyrir ekki svo löngu keypti hann hlut í franska félaginu Le Mans.
Hann stofnaði einnig fjárfestingarfélagið NXTPLAY ásamt Gonzalo Vila og eru þeir félagar stórhuga. Félagið hefur nú lagt fram tilboð í ítalska félagið Reggiana, en markmiðið er að eignast það að fullu og byggja það upp til framtíðar.
Íslendingurinn Kristófer Jónsson er á mála hjá Reggiana, en hann gekk til liðs við félagið í sumar.
„Á ferlinum hef ég séð hversu mikla þýðingu fótboltafélag getur haft fyrir borgina sína. Með NXTPLAY viljum við byggja upp eitthvað sem íbúar Reggio Emilia geta verið stoltir af. Félag sem hefur metnað til að ná árangri á vellinum, sterk tengsl við samfélagið og er byggt upp til framtíðar. Það verður í hjarta alls sem við gerum að skapa ungu leikmönnum rétta umhverfið til að vaxa og þroskast,“ sagði Courtois um Reggiana.