13.11.26 - 20:36
Brynjar Ingi Erluson
Hörður í banni gegn Lúxemborg

Hörður Björgvin verður í banni gegn Lúxemborg

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Hörður Björgvin Magnússon verður í leikbanni þegar Ísland mætir Lúxemborg í lokaumferð Þjóðadeildarinnar á mánudaginn.

TENGT EFNI
Sjáðu Orra bæta við öðru marki eftir frábæra sendingu Harðar
Hörður byrjaði á bekknum gegn Búlgaríu en var kallaður til leiks þegar Stefán Teitur Þórðarson meiddist snemma í fyrri hálfleik.
Hann lét heldur betur til sín taka og átti frábæra stoðsendingu í öðru marki Íslands þegar hann sendi glæsilegan bolta yfir vörn Búlgara á Orra Stein Óskarsson, sem renndi boltanum snyrtilega undir markvörðinn og í netið.
Hörður var hins vegar á hættusvæði fyrir leikinn og því ljóst að gult spjald myndi þýða leikbann í næsta leik.
Það kom einmitt í hlut Harðar að stöðva hættulega sókn Búlgara og uppskar hann réttilega gult spjald fyrir. Hann verður því í leikbanni gegn Lúxemborg, sem eykur enn á vandræði íslenska liðsins í varnarleiknum fyrir þann leik.
Það gæti þó farið svo að Ísland verði þegar búið að tryggja sér toppsæti riðilsins áður en kemur að leiknum gegn Lúxemborg. Til þess þarf íslenska liðið að vinna Búlgaríu og treysta á að Eistland tapi stigum gegn Lúxemborg í kvöld en Eistar eru 1-0 yfir eins og staðan er núna.