Fotbolti.net
13.11.26 - 21:13
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu þriðja mark Íslands - „Búlgararnir eru sjokkerandi lélegir“

Brynjólfur bjó til þriðja markið

Brynjólfur bjó til þriðja markið

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Ísland er svo gott sem búið að tryggja sér sigur gegn Búlgaríu eftir að hafa bætt við þriðja markinu rétt í þessu.
Lestu um leikinn: Búlgaría 0 - 4 Ísland
Hörður Björgvin vann boltann á miðsvæðinu og kom honum á Ísak Bergmann Jóhannesson, sem sendi hann út til hægri á Brynjólf Andersen Willumsson, en sá síðarnefndi hafði komið inn á sem varamaður í hálfleik.

Brynjólfur átti fasta fyrirgjöf á nærstöngina þar sem boltinn fór í Emil Tsenov, leikmann Búlgara, og lak af honum í netið.

„Þetta hefur verið afskaplega sannfærandi hjá strákunum okkar. Þeir þurfa að hafa afskaplega lítið fyrir hlutunum því Búlgararnir eru sjokkerandi lélegir. Alveg ömurlegir,“ skrifar Elvar Geir Magnússon frá Plovdiv.

Fagmannleg frammistaða hjá íslenska liðinu sem stefnir nú hraðbyri í góðan útisigur gegn Búlgaríu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.