13.11.26 - 19:16
Brynjar Ingi Erluson
Kári um agabrotin: Ætla ekki að fara setja mig á háan hest og var ekki barnanna bestur

Kári Árnason tjáði sig um agabrotin

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Aron Elís segir leikmenn hafa brugðist Arnari Gunnlaugs

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kári Árnason tjáði sig um agabrotin

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Kári Árnason og Aron Elís Þrándarson, sérfræðingar SÝN, ræddu agabrotið sem kom upp hjá íslenska landsliðinu í síðasta landsleikjaverkefni.
Lestu um leikinn: Búlgaría 0 - 0 Ísland
Þeir eru báðir í setti fyrir leik Íslands gegn Búlgaríu í Þjóðadeildinni, en íslenska liðið gæti tryggt sér toppsæti riðilsins í kvöld.
Mikið hefur verið rætt og ritað um agabrotið sem kom upp í síðasta landsleikjaglugga, rétt fyrir seinni leikinn gegn Eistlandi.
Hópur leikmanna fékk sér áfengi, en málið var tekið fyrir á liðsfundi og í kjölfarið talið afgreitt. Hegðun leikmannanna vakti þó eðlilega óánægju og kölluðu sumir eftir því að þeir yrðu nafngreindir.
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari landsliðsins, vildi hins vegar ekki gefa upp hvaða leikmenn áttu hlut að máli og taldi málið úr sögunni eftir að tekið hafði verið á því innan hópsins.
Ríkharð Óskar Guðnason spurði Kára út í agabrotið, en Kári sagðist sjálfur kannski ekki vera rétti maðurinn til að tjá sig um slíkt, enda hefði hann verið hluti af landsliði þar sem sambærileg mál komu upp.
„Ég ætla ekki að fara setja mig á háan hest og var ekki barnanna bestur back in the day en ég var í landsliði sem var bæði villt og menningin var þanngi að þetta var aldrei í lagi en engu að síður gert. Það var líka út af því að manni leið eins og maður væri ekki að fara keppa að neinu. Við höfðum sjálfir enga trú á að við værum að fara vinna eða gera eitthvað í þessum keppnum. Það var bara gaman að koma og spila fyrir land og þjóð. Þetta var menningin og þar af leiðandi hvort kom á undan. Árangurinn á vellinum var ekki góður en það er búið að draga strik yfir þetta og passa að þetta gerist ekki aftur.“
„Maður var búinn að heyra að eitthvað svona hafi komið áður upp og svo kemur fjölmiðlabrjálæði sem byrjar í framhaldi og allir verða ósáttir en það verður að passa að þetta er ekki staður né stund fyrir þetta ef við ætlum okkur að gera eitthvað í fótbolta,“ sagði Kári.
Aron Elís sagði leikmennina hafa brugðist Arnari, en vonar að málið hafi verið tæklað á réttan hátt.
„Arnar leggur mikið traust á leikmennina og menn séu fagmannlegir. Strákarnir brugðust honum þarna en vona að þetta hafi verið tæklað vel innan frá svo við getum einbeitt okkur að því sem skiptir máli sem er að koma okkur á stórmót,“ sagði Aron Elís um málið.