Heimild: Vísir
Vivien Bodycote er bresk amma. Hún er 62 ára gömul og fylgist mikið með fótbolta, eða öllu heldur Jose Mourinho.
Bodycote, sem er fyrrverandi aðstoðarkennari, gjörsamlega dáir portúgalska stjórann og fékk sitt 38. húðflúr af honum þegar hann tók við Tottenham á dögunum.
Hún hélt með Chelsea þegar Mourinho var þar og skipti svo yfir í Manchester United en var gríðarlega ósátt með hvernig hann var rekinn frá Old Trafford.
Nú er hún orðin stuðningsmaður Tottenham en flúrið sem hún fékk sér af tilefni ráðningarinnar hefur ekkert að gera með enska knattspyrnufélagið.
Á flúrinu stendur „Velkominn aftur, Jose!" og undir textanum er merki bandaríska körfuboltaliðsins San Antonio Spurs.
62-year-old Vivien Bodycote, a retired teaching (!) assistant, has 38 Mourinho-related tattoos on her body.
— Michael Yokhin (@Yokhin) December 10, 2019
The latest tattoo is dedicated to his return to the Premier League at Tottenham.
"Welcome back, Jose!" with the Spurs logo.
San Antonio Spurs...
Oops! pic.twitter.com/VHZE9qyjeg
Athugasemdir