Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 14. janúar 2021 07:30
Aksentije Milisic
Framkvæmdastjóri Fenerbahce: Özil mjög nálægt því að koma
Mynd: Getty Images
Emre Belozoglu, framkvæmdastjóri Fenerbahce, segir að Mesut Özil hafi aldrei verið jafn nálægt því að ganga til liðs við félagið.

Özil hefur mikið verið orðaður við Fenerbace upp á síðkastið en hann var ekki valinn í úrvalsdeildarhóp Arsenal í vetur.

Özil hefur verið mjög vikur á Twitter og þar sagði hann að hann myndi vilja spila fyrir Fenerbahce áður en hann klárar feril sinn. Hann hefur líka áhuga á því að spila í Bandaríkjunum.

„Mesut er á samningi hjá öðru liði. Hann er stjórstjarna. Það væri frábært fyrir Fenerbahce að fá leikmann eins og hann. Hann er með frábæra ferilskrá," sagði Emre.

„Við fórum á fund með honum og umboðsmanni hans. Hann hefur aldrei verið jafn nálægt því að koma til okkar og nú. Það er draumur hans að spila með þessu félagi."


Athugasemdir
banner
banner
banner