Fotbolti.net
14.01.25 - 15:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Leikmaður Fylkis á reynslu í Belgíu og á Kýpur

Stefán Gísli Stefánsson.

Stefán Gísli Stefánsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stefán Gísli Stefánsson, leikmaður Fylkis, hefur í byrjun ársins verið á reynslu í Belgíu hjá Westerlo og hjá Pafos í Kýpur.

Stefán lék leiki með U21 og U23 ára liði Westerlo í síðustu viku en er nú farinn yfir til Kýpur.
Westerlo leikur í efstu deild í Belgíu þar sem liðið endaði í ellefta sæti á síðustu leiktíð en situr nú í 13. sæti. Pafos FC leikur í efstu deild í Kýpur þar sem liðið endaði í fimmta sæti á síðustu leiktíð en situr nú í öðru sæti deildarinnar.

Stefán Gísli, sem verður 19 ára á árinu, er að upplagi miðjumaður en hefur spilað mest sem hægri bakvörður undanfarin tvö ár.

Stefán hefur spilað 22 leiki og skorað eitt mark fyrir meistaraflokk Fylkis. Hann hefur leikið 17 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands.

„Við hlökkum til að fylgjast með Stefáni Gísla áfram og fögnum því að leikmenn okkar fái að spreyta sig erlendis," segir í tilkynningu Fylkis.

Stefán Gísli er bróðir Ómars Björns Stefánssonar, sem gekk nýverið í raðir ÍA.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.