Fotbolti.net
14.03.18 - 18:15
Magnús Már Einarsson

Mónika Hlíf í KR (Staðfest)

Mónika Hlíf Sigurhjartardóttir.

Mónika Hlíf Sigurhjartardóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Mónika Hlíf Sigurhjartardóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við KR fyrir Pepsi-deildina í sumar.

Mónika kemur til liðs við KR frá ÍR en hún ólst upp í Stjörnunni.

Hin 19 ára gamla Monika spilaði alla leiki ÍR í 1. deildinni í fyrra og skoraði þrjú mörk.

Mónika hefur æft og spilað með KR í vetur en hún skoraði í 3-1 tapi gegn Val í úrslitum Reykjavíkurmótsins í síðasta mánuði.
KR endaði í 8. sæti í Pepsi-deild kvenna í fyrra en Bojana Besic tók við þjálfun liðsins af Eddu Garðarsdóttur síðastliðið haust.

Monika var að semja til 2 ára meira á https://t.co/yr2BRNhktv #allirsemeinn pic.twitter.com/kz6yxW2xRB

— KR Reykjavik FC (@KRreykjavik) March 14, 2018

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.