Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 14. apríl 2021 23:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Guardiola um Bellingham: Kannski er hann lygari!
Mynd: EPA
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, var spurður út í hinn sautján ára Jude Bellingham hjá Dortmund eftir leik liðanna í kvöld.

Bellingham er sautján ára og verður átján ára í sumar. Hann er Englendingur sem gekk í raðir þýska félagsins frá Birmingham síðasta haust.

Bellingham skoraði um liðna helgi sitt fyrsta mark í þýsku Bundesliga og í kvöld varð hann yngsti enski leikmaðurinn til að skora í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar þegar hann kom Dortmund yfir í fyrri hálfleik með góðu skoti.

„Ég trúi því ekki. Kannski er hann lygari! Hann er svo góður miðað við að vera sautján ára," sagði Guardiola eftir leikinn.

Sjá einnig:
Jude Bellingham er sautján ára


Athugasemdir
banner
banner