Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 14. apríl 2021 18:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Henderson: Þetta verður að stoppa
Mynd: Getty Images
Þeir Trent Alexander-Arnold, Naby Keita og Sadio Mane urðu fyrir netofbeldi í síðustu viku eftir 3-1 tapið gegn Real Madrid.

Þríeykið er dökkt á hörund og er rasismi á internetinu mikill hausverkur og rætt um hvort leikmenn eigi að sniðganga samfélagsmiðla til að reyna mótmæla hegðun fávita á netinu.

Í leikskrá fyrir leikinn gegn Real Madrid í kvöld skrifar fyrirliðinn Jordan Henderson eftirfarandi:

„Ég er búinn að fá nóg af því að sjá einstaklinga sem ég þekk og þá sem ég þekki ekki þurfa að þola það ofbeldi sem er í gangi. Ég fæ í magann við að heyra af þessu."

„Þetta verur að stoppa og allir sem eru með vott af einhverju góðu í sér þurfa að spila hlutverk í að þetta stoppi."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner