Fotbolti.net
14.04.26 - 22:50
Brynjar Ingi Erluson

Enrique: Tók lengri tíma en ég hefði viljað

Luis Enrique

Luis Enrique

Canon

Mynd: EPA

Luis Enrique, þjálfari Evrópumeistara Paris Saint-Germain, var létt eftir að hafa stýrt liðinu í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu með því að vinna 2-0 sigur á Liverpool á Anfield í kvöld.
Slot: Kemur mér ekkert á óvart
TENGT EFNI

Slot: Kemur mér ekkert á óvart

PSG fór með tveggja marka forystu inn í seinni leikinn en það er ekki alltaf nóg veganesti til að fara með á Anfield.

Enrique var ánægður með leik sinna manna en segir að þeir hafi á köflum þurft að þjást.

„Liverpool spilaði frábæran leik með alvöru ákefð. Í seinni hálfleiknum þegar leikurinn snerist við þá varð þetta erfiðara fyrir okkur. Við sýndum hvers konar lið við erum og það gerði Liverpool sömuleiðis. Þetta var stórkostlegt einvígi.“

„Heppni er mikilvæg. Ef við hefðum fengið mark á okkur snemma leiks þá hefði þetta verið erfitt þannig stundum þarftu að hafa heppnina með þér.“

„Þeir þurftu að taka meiri áhættu og það þýddi að við gátum keyrt fram í skyndisóknir og drepið leikinn. Það tók okkur lengri tíma en ég hefði viljað.“

„Við vissum að þeir myndu skapa vandamál fyrir okkur og að við þyrftum að þjást á köflum. Ef við horfum á leikinn þá verðskuldaði Liverpool klárlega að skora,“
sagði Enrique.

PSG mætir Bayern München eða Real Madrid í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.