Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 14. maí 2019 14:05
Fótbolti.net
Gunnar Gunnars á förum frá Þrótti?
Gunnar Gunnarsson.
Gunnar Gunnarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net vill Þróttur Reykjavík losa Gunnar Gunnarsson sem ekki er inni í myndinni hjá þjálfurum liðsins.

Gunnar hefur verið utan hóps hjá Þrótturum í fyrstu umferðum Inkasso-deildarinnar og er honum frjálst að ræða við önnur félög.

Gunnar er 25 ára gamall varnarmaður sem kom frá Haukum í vetur. Hann lék 21 leik með Haukum á síðasta tímabili í deild og bikar.

Hann hafði áður leikið í Pepsi-deildinni með Val þar sem hann kom við sögu í 20 leikjum árin 2014 og 2015.

Þróttur er með eitt stig að loknum tveimur umferðum í Inkasso-deildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner