Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 14. maí 2021 19:19
Brynjar Ingi Erluson
Danmörk: Aron Elís lagði upp mark í jafntefli
Aron Elís lagði upp fyrra mark OB með skalla
Aron Elís lagði upp fyrra mark OB með skalla
Mynd: Getty Images
Vejle og OB gerðu 2-2 jafntefli í fallriðlinum í dönsku úrvalsdeildinni í kvöld en bæði lið eru nú þegar búin að bjarga sér frá falli.

Aron Elís Þrándarson var líkt og venjulega í byrjunarliði OB en hann lagði upp jöfnunarmark OB á 17. mínútu.

Vejle komst yfir eftir aðeins tíu mínútna leik en sjö mínútum síðar fóru OB-menn í sókn. Jörgen Skjelvik gerði markið af stuttu færi úr teignum en Aron átti skalla sem hrökk fyrir Skjelvik í teignum og skoraði örugglega.

Saeid Ezatolahi kom Vejle aftur yfir áður en OB jafnaði þegar sex mínútur voru til leiksloka.

Aron Elís spilaði allan leikinn fyrir OB en Sveinn Aron Guðjohnsen kom inná sem varamaður á 70. mínútu leiksins.

OB er í þriðja sæti fallriðilsins með 37 stig, jafnmörg stig og Vejle sem er í fjórða sætinu en bæði lið eiga tvo leiki eftir.
Athugasemdir
banner
banner
banner