14.07.03 - 00:00
Amoruso til Rovers (staðfest)
Ítalinn Lorenzo Amoruso hefur skrifað undir samning við Blackburn og nemur kaupverðið 1,4 milljónum punda. Þessi 32ja ára gamli varnarmaður kemur frá Rangers þar sem hann lék í sex ár og vann þrjá meistara titla.
Áður hafði Souness náð í Ástralann Brett Emerton frá Feyenoord og verða leikmennirnir formlega kynntir á blaðamannafundi í dag.
