14.07.12 - 10:20
Hafliði Breiðfjörð
Tvær serbneskar landsliðskonur í KR (Staðfest)

Kvennalið KR hefur fengið liðsstyrk.

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Kvennalið KR hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir síðari hluta Pepsi-deildar kvenna en serbnesku landsliðsknournar Milena Pešic og Monika Šiškovic eru gengnar til liðs við félagið.
Keppni í Pepsi-deild kvenna er hálfnuð, níu umferðum af 18 lokið, og KR er í botnsæti deildarinnar með aðeins tvö stig.
Liðið er þó komið í undanúrslit Borgunarbikars kvenna því þær slógu Aftureldingu út í framlengdum leik í gærkvöldi.
KR á næst leik gegn Selfossi á miðvikudaginn og þá verða nýju leikmennirnir gjaldgengar með liðinu en félagaskiptaglugginn opnar hér á landi á morgun.
Milena Pešic (f. 1984) lék sjö leiki í undankeppni EM 2012 og skoraði eitt mark, í 4-1 sigri á Króatíu. Monika Šiškovic (f. 1990) hefur leikið þrjá A-landsleiki með Serbíu.

Heimild: Vefur KR