Fotbolti.net
14.07.12 - 17:27
Hafliði Breiðfjörð
Ítalska deildin

Thiago Silva til PSG á 42 milljónir evra (Staðfest)

Thiago Silva er orðinn leikmaður Paris Saint Germain í Frakklandi.

Thiago Silva er orðinn leikmaður Paris Saint Germain í Frakklandi.

Canon

Mynd: Getty Images

AC Milan staðfesti núna seinni partinn í dag að félagið hafi selt varnarmanninn Thiago Silva til Paris Saint Germain en kaupverðið er talið vera 42 milljónir evra.
Fyrr í vikunni hafði félagið tekið tilboði PSG í Silva og Zlatan Ibrahimovic og þó upphaflega hafi verið talið að Zlatan yrði kláraður fyrst hafa viðræður hans við PGS dregist á langinn og núna er búið að klára Silva.

Fréttir höfðu borist af því að læknir PSG hafi flogið til Brasilíu til að taka Silva í læknisskoðun og núna seinni partinn var tilkynnt á vef AC Milan að búið væri að ganga frá sölunni

,,AC Milan tiklynnir að félagið hafi selt Thiago Silva til PSG,\" sagði í yfirlýsingu á vef AC Milan og skömmu síðar kom tilkynning á vef PSG að leikmaðurinn hafi skrifað undir fimm ára samning. Talið er að hann fái 7,5 milljónir punda í árslaun.

Þá á eftir að ganga frá Zlatan kaupunum en talið er að sameiginlegt kaupverð fyrir þá báða hafi átt að vera 62 milljónir evra, þar af séu 42 fyrir Silva.

Heimild: Football Italia

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.