14.08.03 - 00:00
Elvar Geir Magnússon
Kaka til AC Milan (Staðfest)
Brasilíumaðurinn stórefnilegi, Kaka, er genginn til liðs við AC Milan. Þessi 21.árs leikmaður á 10 landsleiki að baki og hefur skorað fjögur mörk í þeim, þ.á.m. eitt í vináttuleik gegn Íslendingum sem Brasilía vann 6-1. Þar heillaði hann m.a. Arnar Björnsson íþróttafréttamann sem spáði honum bjartri framtíð í boltanum. Kaka er miðjumaður og kemur frá Sao Paulo, hann heitir réttu nafni Ricardo Izecson Santos.
