Fotbolti.net
14.08.03 - 00:00
Elvar Geir Magnússon

Phillips til Southampton (Staðfest)

Southampton hefur keypt sóknarmanninn Kevin Phillips frá Sunderland fyrir um 3 milljónir punda. Southampton spilar í UEFA-bikarnum í vetur. Kaupin á hinum þrítuga Phillips tóku lengri tíma en búist var við. Eftir að Sunderland féll úr úrvalsdeildinni seinasta tímabil gaf Phillips til kynna að hann myndi ekki vera mikið lengur hjá félaginu.
Phillips kom til Sunderland frá Watford fyrir aðeins 325.000 pund í júní 1997. Hann hefur slegið í gegn með liðinu og hefur skorað 115 mörk í 209 leikjum, fyrir tveimur tímabilum varð hann markahæstur í úrvalsdeildinni. Hann stóð þó ekki undir væntingum seinasta tímabil og skoraði aðeins sex mörk.

Þess má geta að Sunderland keypti í dag miðjumanninn Colin Healy en hann er 23 ára og yfirgaf Celtic eftir seinasta tímabil.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.