Útvarpsmaðurinn Máni Pétursson var mjög ánægður með frammistöðu Patriks Orra Péturssonar í 1-1 jafntefli Stjörnunnar og Gróttu í Pepsi Max-deild karla fyrr í kvöld.
Máni er meðal frægustu stuðningsmanna Stjörnunnar og er duglegur að láta í sér heyra á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum.
Hann hrósaði Patriki Orra í hástert en hann spilaði allan leikinn í vörn Gróttu og hélt sóknarmönnum Garðbæinga í skefjum.
Patrik er fæddur árið 2000 og uppalinn hjá Stjörnunni. Í fyrra lék hann fyrir B-lið 2. flokks Stjörnunnar en er nú kominn í liðið hjá meistaraflokki Gróttu.
Máni er spenntur fyrir ungstirninu og vonast til að fá Patrik aftur til Stjörnunnar í framtíðinni.
Fyrir ári var Garðbæingurinn Patrik Orri Pétursson í B-lið 2 flokks Stjörnunnar. Í kvöld var hann með sóknarlínu meistarflokks Stjörnunnar i vasanum. 2 töpuð stig en ég get alltavegana glaðst yfir framistöðu hans. Kemur einn daginn vel skólaður tilbaka.
— Máni Pétursson (@Manipeturs) August 14, 2020
Athugasemdir