Kolbeinn Sigþórsson, framherji AIK og íslenska landsliðsins, var rétt í þessu að jafna markamet Eiðs Smára Guðjohnsen en hann gerði 26. mark sitt fyrir íslenska A-landsliðið í kvöld.
Kolbeinn skoraði annað mark Íslands gegn Andorra í kvöld en hann lagði þá einnig upp fyrsta markið.
Ragnar Sigurðsson átti góða sendingu inn fyrir á Kolbein sem plataði varnarmann og markvörð Andorra upp úr skónum áður en hann kom boltanum í markið.
Þetta var 26. mark Kolbeins og er hann nú búinn að jafna markamet Eiðs Smára Guðjohnsen.
Kolbeinn er búinn að spila 54 A-landsleiki en Eiður lék 88 landsleiki.
Athugasemdir