Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 14. nóvember 2020 15:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Januzaj orðaður við endurkomu til Englands
Mynd: Getty Images
Southampton og Brighton eru sögð skoða þann möguleika að fá Adnan Januzaj, fyrrum leikmann Manchester United og núverandi leikmann Real Sociedad, í sínar herbúðir. Bæði félög eru á suðurströnd Englands.

Januzaj er 25 ára gamall Belgi sem hefur einungis byrjað tvo leiki með Sociedad í La Liga og talsverðar líkur á því að hann verði ekki í belgíska landsliðshópnum fyrir EM sem fram fer næsta sumar.

Það er eitt ár síðan Januzaj spilaði síðast landsleik og gæti suðurströnd Englands fært hann nær landsliðinu.

Januzaj er sagður kosta um 22 milljónir punda en riftunarákvæði hans er 54 milljónir punda. Samningur Januzaj rennur út sumarið 2022 og í sumar neitaði Sociedad tilboðum Roma og AC Milan í leikmanninn.
Athugasemdir
banner