14.11.26 - 21:26
Ívan Guðjón Baldursson
Rice verður launahæstur ásamt Saka

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Enski miðjumaðurinn Declan Rice staðfestir að hann sé kominn langt á veg í viðræðum við Englandsmeistara Arsenal um nýjan samning.
BBC greindi frá því snemma í október að Rice væri í viðræðum við Arsenal og hefur leikmaðurinn staðfest það, en Rice er 27 ára gamall og með eitt og hálft ár eftir af samningi.
Rice er af mörgum talinn vera einn af bestu miðjumönnum heims. Hann er algjör lykilmaður í ógnarsterku liði Arsenal sem vill vinna Englandsmeistaratitilinn og komast í úrslitaleik Meistaradeildarinnar annað árið í röð. Hann er einnig lykilmaður á miðju enska landsliðsins og á 81 landsleik að baki.
„Nýr samningur verður vonandi í sjónmáli fljótlega. Ég er svo heppinn að vera hjá félagi eins og Arsenal þar sem þjálfarinn sýnir mér svo mikið traust og liðsfélagarnir gefa mér svo mikla orku," segir Rice, sem kostaði 105 milljónir punda þegar Arsenal keypti hann sumarið 2023.
Hann fær launahækkun með nýjum samningi og verður launahæsti leikmaður Arsenal, ásamt Bukayo Saka.
Rice er meðal varafyrirliða Arsenal og enska landsliðsins og kemur með mikið öryggi inn í leikstíl liðanna, bæði með og án boltans.
„Ég hef verið mjög heppinn að hafa tekist að halda stöðugleika í frammistöðu á ferlinum mínum. Ég er svo heppinn að hafa ekki lent í meira mótlæti en raun ber vitni."

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 10 | +10 | 27 |
| 2 | Brighton | 10 | +19 | 22 |
| 3 | Man City | 10 | +8 | 21 |
| 4 | Liverpool | 10 | +4 | 18 |
| 5 | Chelsea | 10 | +3 | 16 |
| 6 | Everton | 10 | +2 | 16 |
| 7 | Bournemouth | 10 | +2 | 15 |
| 8 | Brentford | 10 | +5 | 14 |
| 9 | Leeds | 10 | +2 | 14 |
| 10 | Aston Villa | 10 | -3 | 13 |
| 11 | Tottenham | 10 | -1 | 12 |
| 12 | Newcastle | 10 | -3 | 12 |
| 13 | Hull City | 10 | 0 | 11 |
| 14 | Ipswich Town | 10 | -5 | 11 |
| 15 | Fulham | 10 | -2 | 10 |
| 16 | Nott. Forest | 10 | -4 | 9 |
| 17 | Coventry | 10 | -9 | 9 |
| 18 | Man Utd | 10 | -5 | 8 |
| 19 | Sunderland | 10 | -9 | 8 |
| 20 | Crystal Palace | 10 | -14 | 7 |