Þróttur R. 1 - 0 ÍR
1-0 Oliver Heiðarsson ('31)
Rautt spjald: Helgi Freyr Sigurgeirsson ('45, ÍR)
1-0 Oliver Heiðarsson ('31)
Rautt spjald: Helgi Freyr Sigurgeirsson ('45, ÍR)
Þróttur og ÍR mættust í Reykjavíkurmótinu í Egilshöll í kvöld. Liðin leika í A-riðli mótsins.
Eitt mark var skorað í leiknum í dag og það skoraði Oliver Heiðarsson, sonur Heiðars Helgusonar, fyrrum landsliðsmanns.
Lið ÍR lék manni færra allan seinni hálfleikinn en Helgi Freyr Sigurgeirsson fékk að líta rautt spjald undir lok fyrri hálfleiks.
Þetta var annar leikur Þróttar í riðlinum og þriðji leikur ÍR. Þróttur tapaði 7-0 í fyrsta leik gegn Fjölnir en ÍR sigraði Fylki í fyrsta leik en tapaði svo gegn Fjölni.
Klukkan 21:00 hefst leikur Fjölnis og KR í sama riðli, sá leikur fer einnig fram í Egilshöll.
Athugasemdir