Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mið 15. janúar 2020 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Úrtakshópur U17 kvenna: Þrettán úr efstu deild
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
25 leikmenn hafa verið valdir í úrtakshóp U17 landsliðs kvenna sem mætir saman á æfingar 22.-24. janúar undir stjórn Jörundar Áka Sveinssonar.

Rétt rúmur helmingur leikmanna er á mála hjá liðum í Pepsi Max-deildinni og má þar finna öfluga leikmenn á borð við Bryndísi Örnu Níelsdóttur, Áslaugu Dóru Sigurbjörnsdóttur, Þórhildi Þórhallsdóttur og Anítu Ýr Þorvaldsdóttur.

Miðvikudagurinn 22. janúar mun fara í fundi, mælingar og heilsufarsskoðun á meðan fimmtudagur og föstudagur fara í æfingar í Skessunni.

Afturelding:
Sara Dögg Ásþórsdóttir

Augnablik:
Hildur Lilja Ágústsdóttir
Þórdís Katla Sigurðardóttir

Breiðablik:
Bergþóra Sól Ásmundsdóttir
Þórhildur Þórhallsdóttir

FH:
Andrea Marý Sigurjónsdóttir

Fylkir:
Bryndís Arna Níelsdóttir

Grótta:
Tinna Brá Magnúsdóttir

ÍA:
Aníta Ólafsdóttir

ÍBV:
Ragna Sara Magnúsdóttir

Haukar:
Elín Björg Símonardóttir
Erla Sól Vigfúsdóttir
Mikaela Nótt Pétursdóttir

HK:
Svanhildur Ylfa Dagbjartsdóttir

KA:
Ísfold Marý Sigtryggsdóttir

Þór:
Jakobína Hjörvarsdóttir
María Catharina Ólafsd. Gros

Selfoss:
Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir

Stjarnan:
Aníta Ýr Þorvaldsóttir
Snædís María Jörundsdóttir

Valur:
Emma Steinsen
Ólöf Sigríður Kristinsdóttir
Aldís Guðlaugsdóttir

Þróttur R:
Andrea Rut Bjarnadóttir
Jelena Tinna Kujundzic
Athugasemdir
banner
banner
banner