banner
   lau 15. janúar 2022 07:00
Victor Pálsson
Bolton fær markvörð frá Man City (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Bolton Wanderers hefur fengið liðsstyrk fyrir seinni hluta tímabilsins og samdi í gær við markvörð.

Markvörðurinn ber nafnið James Trafford en hann skrifar undir lánssamning við Bolton sem gildir út tímabilið.

Trafford er samningsbundinn Manchester City og var í láni hjá Accrington Stanley fyrri hluta tímabils og lék þar 11 leiki.

Um er að ræða markvörð sem er hluti af U20 landsliði Englands og gæti hann spilað sinn fyrsta leik gegn Ipswich í dag.

Bolton leikur í League 2 sem er þriðja efsta deild Englands en liðið lék lengi vel í ensku úrvalsdeildinni.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner